HIN SLEIPA ÍSLENSKA SLEIKJUFANTASÍA /// 1992-1996
(The Icelandic Lick and Slick Fantasy)
Blönduð tækni á pappír
Mörgum skepnum er það eðlilegt að sleikja og vera sleiktar.
Þær sleikja hver aðra. Að sleikja eða ekki sleikja.
Í myndheimi mínum eru Íslendingar sleipir fiskar sem koma úr hafinu og hefja nýtt líf á jörðinni.
Þessi 10 mynda syrpa fjallar á ljóðrænan hátt um 50 ára sjálfstæðissögu þjóðarinnar.
Margs er að gæta, en TUMI (Tímamóta-Uppgötvanir-Menningarlegs-Innblásturs) vísar veginn inn í framtíðina.
Vaskurinn.
Uppstillt áhöfn í vaski og fljótandi bréfbátur.
Móðirin var með kuðung að vopni og sjóræningja á hælunum.
Sækaldur sá strax að við sjónarrönd
voru ekki sjóstakksblóm heldur sóleyjar
- svo alltaf skíni sólin inn til þín.
|