MYNDABÓK DÝRANNA Í LITUM: Rómantík - blönduð tækni, 10 x (70x100 cm)

Þessi myndröð var unnin á árunum 1992-1996 og átti að vera með á sýningu minni í Hafnarborg um haustið 1996. Vegna búferlaflutninga tókst mér ekki að fullgera myndröðina og lá hún í geymslu hjá mér í 12 ár. Árið 2008 lauk ég við síðustu pensilstrokurnar en myndirnar hafa aldrei verið sýndar opinberlega.