2010 - Installation and computer graphics on photo paper : My first experiments with art were based on a book I had in my childhood – The Colour Book of Animals. I sat for hours, imitating the pictures of the creatures. The years went by, and the images are still alive in my mind. Creature, creation – all that is created. What distinguishes the human animal from other animals? When do we behave as animals? In history the fusion of human beings and beasts often appears. For example we have the well known Metamorphoses of the Roman poet Ovid. Transmutation also happens in the story of Pinocchio – where the boys behave as donkeys and of course transform to such creatures. Playboys and liars. I also had another illustrated book with animals but it was only in black and white. Today I walk the streets, armed with a little camera and shoot snap shots of the human life in colour. Coloured advertisements with people smiling broadly continue to appear in my mail box. I have taken all those images, painted on them with crayons and watercolours, scanned them in my computer, mixed them together and developed them on photo paper. The culture, to cultivate – is among other things to remember why we went cultivating our self and our environment. It matters. While we still survive on the planet I want to craft my own Colour Book of Humanized Creatures. The species of the Earth are numerous so it will take a while before I finish it but here I present the first pages of my book.

...outside the castle little Phantom was on the rainbow tricycle but from the other side of the wall humming could be heard...

2010 - Innsetning og tölvugrafík á ljósmyndapappír : Fyrstu tilraunir mínar til myndlistar byggðust á bók sem ég átti í æsku – Myndabók dýranna í litum. Ég sat tímunum saman og dró upp eftirmyndir af skepnunum. Árin liðu og áfram voru skepnur bókarinnar ljóslifandi í huga mér. Skepna, sköpun – allt það sem skapað er. Hvað greinir mannskepnuna frá dýrunum? Hvenær hegðum við okkur eins og skepnur? Í menningarsögunni er marg oft greint frá samruna manna og dýra. Skemmst er að minnast Ummyndanna Ovíds, sem nýkomnar eru út í íslenskri þýðingu. Ummyndanir gerast einnig í annarri bók æskunnar, sögunni um Gosa – þar sem drengirnir hegða sér eins og asnar og breytast að sjálfsögðu í slíka. Glaumgosar og lygalaupar – hljómar kunnuglega. Ég átti líka aðra gamla myndabók um dýr en hún var að mestu svarthvít. Í dag ferðast ég um strætin vopnaður myndavél og tek skyndimyndir í lit af mannlífinu. Litprentaðir auglýsingabæklingar af skælbrosandi manneskjum berast mér svo í sífellu inn um bréfalúguna. Allar þessar myndir hef ég málað ofan í með litum, skannað í tölvuna, blandað saman og stækkað upp á ljósmyndapappír. Menningin, það að mannast – er meðal annars að muna hvers vegna við fórum að rækta okkur og umhverfið. Kúltúr og það að vera kúltiveraður. Það skiptir máli, því á margan hátt má segja að jörðin væri betur á sig komin án mannskepnunnar. En á meðan við tórum enn á jarðkringlunni þá langar mig að búa til mína eigin Myndabók mannlegra skepna í litum. Skepnur jarðarinnar eru margar svo það verður örugglega ærið framtíðarverkefni að ljúka bókinni en hér eru komnar fyrstu 18 blaðsíðurnar í þessari bók minni.

...fyrir utan kastalann var Skuggi litli á regnbogahjólinu en innan veggjarins mátti heyra raulað...

01. Cover / Forsíða

02. Human Life / Mannlegt líf

03. Nest Robber / Hreiðurræningi

04. Mango Madness / Bananabræði

05. Captivity / Helsi

06. Ambulance / Sjúkrabíll

07. Shrinking Self / Sjálfskroppinn

08. Skull / Hauskúpa

09. Tiger / Tígur

10. Mole / Moldvarpa

11. Pure Heaven / Himnasæla

12. Anxious Bodies / Kvíðakroppar

13. Affectionate / Blíður

14. Over the Rainbow / Yfir regnbogann