Lives and works in Reykjavík, Iceland

Education:
1991-1992: University of Iceland , philosophy
1987-1991: Icelandic College of Art and Craft, painting

Employment:

2008-2010: The Court Painter of ACP Group (Association of the Common People Group). In the spring 2008, Jon exhibits the installation Background, which includes Palle who was alone in the world and Jolly, a creature sleeping on an iceberg. Concurrently, Jon starts working on a series of paintings Knights of Happiness; an ode to the common people, the families that make up the clockwork of societies. This is an ode to the parents and children who always carry the burdens if something is amiss; who are slaves of daily life practice and the knights of their own happiness, wakening every morning, going to work, paying their duty to the emperor and kissing each other good night in the evenings if destiny permits. In the autumn 2008, a dark Phantom visits the land and the nation.
2008-2010: Hirðmálari AAL Group (AlmenningsAllraLanda Group). Um vorið 2008 sýnir Jón innsetninguna Bakland - þar sem hann sýnir m.a. Litla bróður sem var orðinn mikið stærri en stóri bróðir, Tralla á ísjakanum, Palla sem var einn í heiminum og minnir á mikilvægi þess að eiga sér bróður að baki. Þetta sama vor byrjar Jón á myndröðinni Lukkuriddarar og fær um haustið styrk frá Myndstefi til þess að ljúka við verkið. Myndröðin er óður til almennings allra landa, fjölskyldnanna sem mynda gangverk samfélaganna. Foreldrar og börn sem alltaf taka á sig byrðarnar ef eitthvað bjátar á. Hversdagsþrælar og riddarar eigin lukku sem vakna samviskusamlega hvern morgun, halda til sinnar iðju, gjalda keisaranum skuld sína og kyssa svo hvort annað góða nótt af væntumþykju - ef bráðabirgðaörlögin leyfa. Um haustið lagðist svo Skuggi yfir lönd og lýð.
2006-2008: An art director at the Court of the Divine Eros. Jon is surprisingly idle, despite being at home on the fields of love. He publishes a colour printed book and exhibits a series of paintings, Defining the Brain System of Loverboy, early in the year 2008. Again Jon is dismissed from the Court; the unpredictable son of Resource and Need – Eros – does not bother to show up and sends him a letter of resignation.
2006-2008: Jón flyst heim til Íslands og byrjar að fikta við penslana að nýju. Hann ræður sig sem listrænan stjórnanda við hirð hins guðdómlega Erosar. Á ökrum ástarinnar er Jón á heimavelli en lítið var um verkefnin í byrjun. Jón gefur út bókina og sýnir myndröðina Að skilgreina heilastarfsemi ástarpiltsins, snemma árs 2008. Enn og aftur er Jón rekinn frá hirðlífi. Hinn óútreiknanlegi sonur Pórosar og Peníu - Eros - mætti ekki einu sinni á sýninguna og sendi Jóni uppsögn bréfleiðis.
1996-2006: The Court Painter of the European Union in Copenhagen . An initital favourable reputation is, lost as the same happens as in previous employment – the project expands to the impossible and the task becomes too enormous for one painter. Jon is sent off into a painterly rehabilitation which lasts for almost a decade.
1996-2006: Jón dvelst í byrjun við glæstan orðstír sem hirðmálari Evrópusambandsins í Kaupmannahöfn. Fer það samt á sama veg og hjá Sækaldi - verkefnið vex úr öllu valdi. Sambandsríkjunum fjölgar stöðugt og verkefnið verður einum manni gjörsamlega ofviða. Jón málar yfir sig og þarf að fara í maleríska afvötnun sem stendur í næstum áratug.
1992-1996: A royal painter of oilskin flowers at the Court of King Seacool. Jon is entrusted with painting a giant heroic portrait of King Seacool, Seacool and Seagold. However, the painting changes into a different opus: Seahell and Seamonsters, which results in Jon being discharged with disgrace from the Court in the spring 1996.
1992-1996: Konunglegur sjóstakksblómamálari við hirð Sækalds konungs. Jóni er falið að mála af Sækaldi stóru hetjumyndina Sækaldur og sjávargull. Myndin breytist í Sjóvíti og sjóskrímsl og eftir sýningu á verkinu í Hafnarborg 1996 er Jón rekinn með skömm frá hirð konungs.